Jólin á Sveitasetrinu Brú

Hýr og rjóð um jólin

Komið og haldið upp á huggulegasta og hýrasta tíma ársins á Sveitasetrinu Brú. Frá 18. desember til 1. janúar verður Sveitasetrið tendrað öllum regnbogans jólaljósum í besta þjóðlega stíl. Þegar við erum ekki að leika okkur í snjónum höfum við það huggulegt inni í desember með jólabakstri, laufabrauði, föndri, sögustundum við eld og góðu glöggi. Svo við tölum nú ekki um jólakræsingarnar. Tími jólahlaðborðanna er að renna upp. Kíktu á pakkana og sjáðu hvað lendir í skónum þínum.

18. – 22. desember & 26. – 29. desember

Á hverjum degi má koma og taka þátt í jóladagskrá sem felur í sér

  • Jólabakstur. Við bökum og skreytum piparkökur, smákökur, kleinur og laufabrauð.
  • Föndurhorn – Skapaðu jólaskraut drauma þinna.
  • Púsluhorn.
  • Snjóleikar af ýmsum toga
  • Jólasögustund
  • Varðeldur
  • Heitt súkkulaði og glögg

Dagur 8900.- kr.
Dagur með hlaðborði 14.900.- kr.

Þorláksmessa – 23. desember

  • Skata, hákarl og brennivín – Hádegisverður í Hlöðunni
  • Jólatré skreytt og jólaglögg
  • Húslestur og sögustund
  • Sjávaréttahlaðborð
  • Mundu eftir skónum – Kertasníkir kemur í kvöld. Varstu gott?

Þorláksmessupakki með hlaðborði 19.900.-kr.

Aðfangadagur

  • Jólamorgunmatur
  • Flatkökugerð
  • Ris a la mande í hádeginu (aðeins fyrir pakkagesti)
  • Jólaundirbúningur
  • 17:30 Fordrykkur
  • 18:00 sharp – Jólabjöllurnar
  • 18:01 Jólamatur – allt innifalið
  • Dansað og sungið í kringum jólatréð
  • Gjafir
  • Jólasaga, smákökur og kósí

Heildarpakki með gjöf 34.900.-
Jólamatur einungis 24.900.- kr. Þarf að bóka.

Jóladagur

  • Jóla dögurður
  • Útileikir
  • Jóladagshlaðborð
  • Spilakvöld

Jóladagur allur pakkinn 24.900.- kr.

Bara hlaðborð 18.900.- kr.

Þarf að bóka fyrirfram.

ÞRIGGJA DAGA JÓLAPAKKI

Allt innifalið 69.900.- kr.

Með gistingu í double/twin herbergi, 139.000.- kr á mann.

30. desember – Síðasti nornafundur ársins

  • Að miðla krafti Jarðar – Hreyfitími með jógaívafi til að jarðtengja okkur og undirbúa fyrir nýtt ár.
  • Áramótahattagerð
  • Þema kvöldverðarhlaðborð – Göldróttir réttir og görótt seyði
  • Óskastund – Völvugjörningar og þakkir
  • Varðeldur og dans

Heill galdradagur, allt innifalið 27.900.- kr.

Kvöldverður einungis, 21.900.- kr

Gamlárskvöld – Árið kvatt

  • Lognið á undan storminum – Úti eða inni leikir
  • Áramótakvöldverður
  • Hlöðugleði
  • Áramótaskaup
  • Brenna

Gamlársdagur er aðeins seldur sem pakki með öllu inniföldu. Afgangadögurður 1. janúar innifalinn.

Verð 59.900.- kr. per person.

1. janúar- Megi líkurnar ávallt vera þér í hag, elskan!

  • Fyrsti dögurður ársins
  • Bíókvöld og pizza

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

ÁRAMÓTAPAKKINN ALLUR

Allur þriggja daga pakkinn – Allt innifalið 74.900.- kr.

Með gistingu , double/twin, 169.000.- kr. á mann.

Make your Yuletide Merry and Gay